|
|
26.08.2006 22:19:00 / sasa
Jæja hvað segist...
Sumar"frí" búið og maður komin í gírinn aftur.
Loksins byrjuð í skólanum, er í FULLU námi, með 24 einingar og kom
í ljós að með breyttu skipulagi í skólanum get ég klárað í vor. Svo
er bara að fara að pæla í framhaldsnáminu, það er svo margt í boði,
mig langar að læra: Fatahönnun,búningahönnun, sviðsmyndahönnun,
leiklist, leikstjórn, myndlist,arkítekt, innanhússhönnun o.fl.
o.fl.
Hvernig á maður að geta ákveðið sig með svona margt í boði....
Svo er það hvert... á maður að læra hér heima eða leggja land undir
fót, líkt og svo margir eru að gera í dag, og þá hvert? Danmörk eða
Svíþjóð liggur nú kannski beinast við með námsmanna og barnvænt
kerfi, en svo eru öll hin löndin einsog Ítalía, Bretland o.s.frv.
Hvað segið þið, einhverjar hugmyndir?
»
24.07.2006 01:24:02 / sasa
Ég veit ég hef ekki verið dugleg að blogga, en svona fer sumarfríið
með mann, vinna vinna og vinna og þreyta. En loksins komst maður
útúr bænum, fórum í Húsafell í bongóblíðuna og bjórinn og komum
fersk  , brún og sumir brunnir heim.
Setti myndir úr ferðinni í myndaalbúmið
»
12.06.2006 18:48:33 / sasa
Endilega kíkið á þessa síðu: www.myheritage.com
Þar er hægt að bera saman myndir af sjálfum sér og frægum
einstaklingum og sjá hverjum þú ert lík/ur og í prósentum meira
segja.
Commentið hverjum þið eruð lík...
»
21.05.2006 15:16:40 / sasa
GO Finnland 
Sátt með úrslitinl, þó það hefði nú bætt partýstemminguna að fá
Silvíu í úrslitin, en það var nú kannski ekki við því að
búast....
Finnar komu með nýjan og ferskan blæ í keppnina og komu, sáu og
sigruðu,
Svo er akkúrat Finnar í sjónvarpinu núna að vinna Kanadamenn í
íshokkí,þeir hafa víst ekki unnið leik síðan 2001, þannig að þetta
eru greinilega merkisdagar í sögu Finna.
Til hamingju Finnar
»
19.05.2006 12:25:11 / sasa
Hey þú, þú ert heima hjá mér
og ég ræð öllu hér
Ég er Særós beib hvergi smeyk
ég er flottari en þið
Born in Reykjavík, algjört fatafrík
ekkert gleraugnageek
Ég veit ég er eina gellan hér
Algjör mega fokking stjarna
Til hamingju Særós
Ég á afmæl´ í dag
Þett´er partýið mitt
og djamm er mitt fag
Júróvísíonkeppnin
er bara frat
Ég er fædd til að djamma
og drekk á mig gat
Töff Töff Töff
Mitt dress ógeðslega töff
ekkert eighties ógeð
Ég er full OK samt hrein mey
en ég segi aldrei nei
þessar kellingar eru ógeðslegar
haf´ekkert í mig
þær eru gay, þær eru gimp
og ég hef stærstu brjóstin
Viðlag 2x
símtal:
Hæ er etta Brad Pitt
Hva´segiru eskan
ætlaru að hafa kvöldmatin til?
OK bæ sjáumst
Viðlag
»
08.05.2006 20:36:02 / sasa
Því meira sem ég læri
því meira veit ég
Því meira sem ég veit
því meira gleymi ég
því meira sem ég gleymi
því minna veit ég
Svo, afhverju læra??
»
02.05.2006 22:05:22 / sasa
I was out walking with my 4 year old daughter. She picked up
something off the ground and started to put it in her mouth.
I took the item away from her and I asked her not to do that.
"Why?" my daughter asked. "Because it's been on the ground,
you don't know where it's been, it's dirty and probably has germs"
I replied.
At this point, my daughter looked at me with total admiration and
asked, "Mommy, how do you know all this stuff?" "Uh," I was
thinking quickly. "All moms know this stuff. It's on the Mommy
Test. You have to know it, or they don't let you be a Mommy."
We walked along in silence for 2 or 3minutes, but she was evidently
pondering this new information. "OH...I get it!" she beamed, "So if
you don't pass the test you have to be the daddy."
"Exactly" I replied with a big smile on my face.
»
30.04.2006 21:28:05 / sasa
Hvert námsekið
er 10 vikur og lýkur með skriflegu prófi. Nemendur fá
viðurkenningarskjal í lok námskeiðsins, sem þeir geta
framvísað á alþjóðlegum markaði.
Námskeiðsnúmer og
lýsing:
015501 -
Hvernig á að smyrja brauðsneið á þess að setja eldhúsið á hvolf.
Skref fyrir skref sett fram á myndrænan hátt.
mánudaga
17:00 - 18:30
015402 -
Klósettpappír. Er það satt að maður geti sett nýja rúllu á
klósettpappírhaldarann?? Verkleg æfing á verkstæðinu
þriðjudaga 18:00 -
20:00
035603 -
Á að lyfta klósettsetunni áður en maður pissar? Er mögulegt að
pissa án þess að hitta gólf, veggi eða setuna??? Verklegar
æfingar.
Mánudaga
18:30 - 20:00
035604 -
Grundvallarmunur á baðherbergisgólfinu og þvottakörfunni. Mynda,
ferla og skipuritasýning.
Föstudaga
16:30 - 21:30
035605 -
Er mögulegt að vera góður elskhugi til lengri tíma? Farið verður í
grundvallarmuninn á "einna nætur gamans" og innihaldsríks
kynlífs.
Þetta
námskeið er í 3 þrepum, "það þarf meira en tippi til", "tímasetning
og alúð í verki" og "konur elska með öllum kroppnum".
Skrifleg
próf og meðmæli ástkonu eru nauðsynleg til að færast á milli
þrepa.
mánudaga
17:30 - 19:00
052206 -
Tilvistarkreppa. Hefur þú tapað betri helmingum af sjálfum þér?
Stuðningshópar og heimsóknir til íþróttamanna sem hætt hafa að
spila.
laugardaga 19:00 -
20:30
072404 -
Lært að leita að hlutum. Byrjað verður á því að fara í gegnum hvar
hlutir eru vanalega geymdir og stress og öskurviðbrögð æfð.
Leikþættir og raunverulegar lífsreynslusögur.
miðvikudaga 18:00 -
21.00
025408 -
Að gefa konunni blóm og tækifærisgjafir hefur ekki skaðleg áhrif á
sjálfið. Sett fram á mynd og hljóðformi.
föstudaga
17:00 - 20:00
011709 -
Heilbrigðir menn spyrjast til vegar ef þeir villast.
Gestafyrirlesarar og dæmi úr raunveruleikanum.
miðvikudaga 19:30 -
21:00
102210 -
Konan undir stýri. Er mögulegt að sitja rólegur og hreyta ekki í
hana ókvæðisorðum í föstudagsumferðinni?? Bílhermir.
mánudaga
18:30 - 20:00
101811 -
Hugsum í víddum. Farið verður í grunn mismuninn á milli mömmu og
kærustu/konu. Stuðst við handbók í byrjun, byggist annars á
hlutverkaleik.
þriðjudaga 20:00 -
21:00
102512 -
Er hægt að eyða degi í Kringlunni með fjölskyldunni?
Afslöppunaraðferðir, hugleiðsla og öndunaræfingar.
föstudaga
15:00 - 21:00
171513 -
Hvert er samhengið á milli leikja í ensku deildinni og merkisdaga í
fjölskyldunni. Gerð persónulegra samhengiskorta og "Til hamingju.."
æfingar. þriðjudaga 18:00 - 19:30
Skráningarblað:
Nafn:
Hjúskapastaða:
Ár frá
því að yfirgefið var foreldrahús:
Fyrri
kunnátta:
Ryksuga:
Ná í
börnin:
Ná í
börnin á réttum tíma:
Uppvask:
Þvottur:
Grunnfærni í
innkaupum:
Búa um
rúm:
Leiðbeinendur munu
hafa samband við umsækjendur, til ráðleggingar um hvaða
námskeiðaval og hvaða stig hentar einstaklingum.
Námskeiðshaldarar
»
30.04.2006 00:20:15 / sasa
Einn daginn fór
gömul kona með fulla tösku af peningum í banka.
Við
afgreiðsluborðið sagði hún að hún vildi bara tala við
bankastjórann, um að opna sparireikning: ''þetta eru miklir
peningar, þú skilur.''
Eftir
langar rökræður var konunni fylgt til bankastjórans Bankastjórinn
spurði um upphæðina sem konan vildi leggja inn. Hún sagði honum að
það væri um 50 milljón evrur að ræða. Hún tæmdi töskuna fyrir hann.
Auðvitað varð bankastjórinn forvitin um hvaðan allir þessir
peningar kæmu.
´´Kæra
frú, það kemur mér á óvart hversu mikla peninga þú hefur - hvernig
stendur á því?´´
Gamla
konan svaraði honum ´´ Mjög einfalt. Ég veðja!''
´´Veðjar?'' spurði
bankastjórinn, ´´hvers konar veðmál?''
Gamla
konan svaraði:´´Jah, allt mögulegt. Til dæmis, veðja ég við þig,
uppá 25.000 evrur að eistun á þér séu ferköntuð!´´
Bankastjórinn fór að
hlæja og sagði: ´´Það er fáránlegt! Á þennan hátt getur þú aldrei
unnið svona mikla peninga.´´
Jæja,
eins og ég sagði áðan, þá er það á þennan hátt sem ég vinn mér inn
peningana. Ert þú tilbúin til að taka þátt í þessu
veðmáli?´´
´´Auðvitað!´´ svaraði
hann. Það voru jú miklir peningar í húfi. ´´Ég veðja semsagt 25.000
evrum uppá að eistun á mér séu ekki ferköntuð.´´
Gamla
konan svaraði:´´ Samþykkt, en þar sem þetta eru miklir peningar, má
ég þá koma við á morgunn, kl 10:00 með lögfræðinginn minn, svo að
við höfum líka vitni?´´ ´´Auðvitað!´´ Bankastjórinn
samþykkti.
Um
nóttina var bankastjórinn frekar taugaóstyrkur og skoðaði ýtarlega
á sér eistun, tímunum saman. Fyrst öðrumegin svo hinumegin. Að
lokum með hjálp einfalds prófs varð hann 100%öruggur. Hann myndi
vinna veðmálið, alveg viss!
Morguninn
eftir kom gamla konan, kl 10:00 í bankann með lögfræðinginn sinn.
Hún kynnti mennina tvo hvor fyrir öðrum og endurtók veðmálið uppá
25.000 evrur. Og uppá nýtt samþykkti bankastjórinn veðmálið að
eistun á sér væru ekki ferköntuð. Eftir það bað hún hann um að taka
niður um sig buxurnar til að skoða málið (punginn) einu
sinni.
Bankastjórinn tók
niður um sig buxurnar, gamla konan kom nær, skoðaði punginn í
rólegheitum og spurði hann varlega hvort hún mætti koma við eistun.
Mundu eftir að það eru miklir peningar í húfi.
´´O.K.´´
sagði bankastjórinn öruggur.´´ Þetta er 25.000 evra virði og ég
skil vel að þú viljir vera viss.
Þá kom
konan enn nær og hélt eistum mannsins í lófa sér.
Þá tók
bankastjórinn eftir því að lögfræðingurinn var farinn að berja
hausnum á sér við vegginn.
Bankastjórinn spurði
konuna:´´ Hvað er að lögfræðingnum þínum?´´
Hún
svaraði: ´´ Ekkert, ég veðjaði við hann, uppá 100.000 evrur að ég
skildi í dag kl 10:00 hafa eistu á bankastjóra í hendi mér.
»
27.04.2006 19:36:41 / sasa
Einn daginn var maður að röllta

Þá kom hann auga á liggandi konu

Og þá byrjaði hringekjan

Svo stökk hann út í djúpu laugina..

Og bauð henni út að borða

Þau fengu sér pulsu og kók

Og ferðuðust saman um heiminn

.. fóru í hvaðaskoðun

Og á hestbak..

Hann fór með hana í nálægt sæluhús

Og hún sagðist vera á pillunni

Hún lagðist á rúmið

Og glennti í sundur á sér lappirnar

Og holdið fór að rísa á okkar manni.

.. og hann fór inn í göngin.

Inn og út.. Inn og út.

Hann fann strax að hún var ekki óspjölluð

Hann stakk upp á því að taka hana aftanfrá..

En hún harðneitaði því!

Henni fannst hann ekki fara nógu hratt..

Og gerði grín af litla tólinu hans.

Svo hann kveikti á sleggjunni..

Og óð í öll göt sem hann sá.

Og þegar hún hafði séð alla liti regnbogans..

Öskraði hún STOP!

Því hún hafði ekki sagt honum sannleikann!

Hún var ekki á pillunni!

Hann missti stjórn á sjálfum
sér

Og missti stjórn á fleiru ….

Fékk nóg og gekk út!

9 Mánuðum seinna hringir hún..

Af sjúkrahúsinu..

Hann var orðinn pabbi!

Hann vildi ekki fjölskyldu..

Lífið hans hrundi!

Og eftir það lá allt niður á við..

Og hann vildi bara deyja..
Og boðskapurinn með þessu er..

Ef þið viljið ekki gera stelpu ólétta..
NOTA SMOKKINN
»
27.04.2006 19:14:11 / sasa
Seint koma sumir en
koma þó. Er búin að vera á fullu í skólanum, hef ekki haft
neinn tíma til að skrifa og hef varla tíma núna, er að klára
á morgun að skila 3 lokaverkefnum.
En eitt sem ég var að pæla
og langaði að pæla í með ykkur, hvort segið þið að vera hrifin af
eða vera skotin í sé sterkara. Mín túlkun er þannig að vera
hrifin af sé léttara því það er hægt að vera svo hrifin af mörgu og
mörgum, einsog ég er hrifin af vinum mínum og hrifin af bleikum lit
o.s.frv. En skotin í fyrir mér er ef maður fær skot(frá Amor) og er
næstum ástfanginn. Veit að ég hef nú rætt þetta við suma en hvað
segir þú?
»
18.04.2006 00:25:50 / sasa
Jæja, þá er maður nú komin, hefði nú alveg verið til í að vera
lengur enda skemmti ég mér mjög vel. Einsog kannski sést smá á
síðasta innleggi 
Þetta var nú samt ekki bara djamm, við gerðum nú ýmislegt fleira,
til dæmis: Fórum í svona garð sem er nokkurskonar blanda af
dýragarði og árbæjarsafni, fórum í smá bátsferð og í útsýnisturn,
svo gerðumst við menningarleg og fórum á nýlistar- og
arkítektúrasafnið, þar var mjög gaman að sjá með eigin augum verk
sem við höfum mikið verip að læra um í listaáfanganu, einsog
Duchamp,Warhole og Pollock ásamt milku fleira. Svo var auðvita
farið í margar heimsóknir í H&M og þar held ég að mestur hluti
peningana minna hafi farið  En svo keypti ég mér líka iPod nano
til að geta verið cool í sumar á röltinu um bæinn...
Jæja legg meir inn seinna....
seinna...
P.S. Eygló takk æðislega fyrir mig 
P.S.S. og Sigrún Helga fyrir farið
»
15.04.2006 21:40:46 / sasa
Nú er ég stödd í landi Svíanna og smá búnað drekka og langaði bara
að segja að það er búið að vaera voða. SIGRÚN ÉG ELSKA
ÞIG: Skatann og svo líka að við erum hér heima hjá Eygló og
erum á "smá" jammi og vi skal gár i byen(á dönsku ) þó að vi
proddar auðvita sænsku hér. og ég er bara smá að steypa og þiið
fyrirgefið það náttlega 
ég ætla að hald áfram seinna því ég er að fara að dansa; að farað
dansa 
DE tror jeg(pá dansk)
»
09.04.2006 22:48:48 / sasa
hahahaha  útför fattiði hahaha
Ég er svo mikill lúði
Jæja, nú er ég loks að fara til Sænsku prinsessunar minnar, hennar
Eygló, þarf að vakna eftir 5 tíma og ná flugrútunni klukkan 5 í
nótt og hitti svo Eygló um klukkan tvö að sænskum tíma. Planið mitt
fyrir ferðina er mjög vel undirbúið, drekka bjór, drekka bjór,
drekka bjór o.sfrv. 
Jæja, legg kannski meira inn í bankan úti annars heyriði bara í mér
þegar ég kem heim, en það er á páskasunnudag.
Gleðilega Páska
Over and out
»
04.04.2006 21:02:08 / sasa
Embla fór í
myndatöku með Lísu ömmu sinni og ég var að fá smá sýnishorn
af myndunum og setti í myndaalbúmið hér til hliðar. Enndilega
kíkið, er mjög ánægð með þær
»
Síður: 1 2
|
|